Fréttasíða JafnréttisráðsHeim
Jafnréttisráð | Jafnréttisstofa | Kærunefnd Jafnréttismála
Borgum við Norðurslóð | 600 Akureyri
Sími: 460 6200 | Fax: 460 6201
Netfang:
Vefslóð: www.jafnretti.is
Fréttir

Ályktun Jafnréttisráðs um stjórn og trúnaðarmannaráð VR
27.4.2010 11:57 HRH

Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um niðurstöðu allsherjaratkvæðagreiðslu um stjórn og trúnaðarmannaráð VR. Þar fagnar ráðið niðurstöðum kosninganna þar sem jöfn kynjahlutföll urðu í báðum tilfellum.

Smelltu til að lesaLesa meira
Ályktun Jafnréttisráðs um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs
10.2.2010 10:47 HRH

Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þar sem skorað er á Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskipatráð Íslands og Samtök atvinnulífsins að beita áhrifum sínum til þess að ná sem fyrst fram markmiðum sínum um 40% hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja.

Smelltu til að lesaLesa meira
Ályktun Jafnréttisráðs um skerðingu fæðingarorlofs
10.12.2009 11:27 HRH

Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um þar sem varað er við þeim hugmyndum sem fram hafa komið um skerðingu fæðingarorlofs.

Smelltu til að lesaLesa meira
Viðurkenning Jafnréttisráðs
12.11.2009 21:20 HRH

Jafnréttisráð hefur ákveðið að veita kvennalandsliðinu í fótbolta viðurkenningu ráðsins árið 2009. Meginröksemd fyrir þessari ákvörðun Jafnréttisráðs er það fordæmisgildi sem starf og árangur kvennalandsliðsins hefur og er stúlkum mikil hvatning og fyrirmynd.

Smelltu til að lesaLesa meira
Nýtt Jafnréttisráð skipað
16.10.2009 12:54 HRH

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað nýtt Jafnréttisráð og er Þórhildur Þorleifsdóttir formaður þess. Hlutverk Jafnréttisráðs er að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum rétti kvenna og karla á vinnumarkaði, veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um aðgerðir á þessu sviði.



Smelltu til að lesaLesa meira
Fréttatilkynning frá Jafnréttisráði
31.3.2009 10:52 HRH

Jafnréttisráð fagnar nýrri aðgerðaáætlun gegn mansali, stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um kynjaða hagstjórn og tilkomu Jafnréttisvakarinnar í fréttatilkynningu sinni. Einnig minnir ráðið á mikilvægi þess að stjórnvöld haldi vöku sinni og minnir á mikilvægi þess að skipa bæði karla og konur í nefndir og ráð á vegum ríkisins. Ályktunin er hér birt í heild.

Smelltu til að lesaLesa meira
Alcoa Fjarðaál hlaut viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008
25.10.2008 00:04 SJ

Alcoa Fjarðaál hlaut í dag árlega viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir störf sín í á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem hún flutti við þetta tækifæri sagði hún meðal annars að árangurinn af jafnréttisstefnu fyrirtækisins væri sá að 28% af 450 starfsmönnum væru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. „Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða.“

Smelltu til að lesaLesa meira
Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði og jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs
21.10.2008 13:37 SJ

Jafnréttissjóður og Jafnréttisráð efna til sameiginlegrar athafnar föstudaginn 24. október nk. kl. 15 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, þar sem veittir verða fimm styrkir til rannsókna á sviði jafnréttismála og jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs verður afhent. Við sama tækifæri verða rannsóknarniðurstöður fimm styrkþega ársins 2007 kynntar.

Smelltu til að lesaLesa meira
Kynjasjónarmið verði höfð að leiðarljósi við uppbyggingu samfélagsins
17.10.2008 15:33 SJ

Á fundi sínum hinn 14. október sl. samþykkti Jafnréttisráð eftirfarandi ályktun:

Á tímum gríðarlegra efnahagshamfara hér á landi minnir Jafnréttisráð á að óhjákvæmilega munu verða miklar þjóðfélagsbreytingar. Breytingar fela í sér tækifæri til umbóta og til þeirra þarf að vanda. Kynjasjónarmið þarf að hafa að öflugu leiðarljósi þegar mótuð verður atvinnustefna framtíðarinnar.

Smelltu til að lesaLesa meira
Jafnréttisviðurkenning 2008
2.7.2008 19:27 SJ
Lýst eftir tilnefningum

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2008. Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.

Smelltu til að lesaLesa meira
Skráðar fréttir: 27 - Síða: 1 af 4 Fyrsta síða Til baka Áfram Síðasta síða